


ProLan Ryðvarnarþjónusta
Hjá Smára Hólm
Nátturuleg & Umhverfisvæn
ProLan ehf.
Sími:
861-7237
Netfang:
Skilmálar
YouTube
Heimasíða Ryðvarnarþjónustunar
Samstarf við bílaleigu Akureyrar
SÉRFRÆÐINGAR Í TÆRINGARVÖRN
NÁTTÚRULEG OG UMHVERFISVÆN RYÐVARNARÞJÓNUSTA
Fagleg og áreiðanleg
Prolan Ryðvarnarþjónusta Hjá Smára Hólm.
Það sem aðgreinir okkur er einlæg hollusta við viðskiptavini, fagmennska og metnaðarfull þjónusta.
Við leggjum ríka áherslu á stöðuga þekkingaröflun og þjálfun starfsfólks til að tryggja árangursríka og áreiðanlega tæringarvörn.
Bíllinn þinn á skilið framúrskarandi vernd og við vinnum af einlægni að því að veita hana.
OKKAR ÞJÓNUSTA
Við bjóðum upp á áreiðanlega tæringarvörn með Prolan – náttúruleg, umhverfisvæn og áhrifarík vernd fyrir bílinn þinn.
ProLan Ryðvarnarþjónusta
Hjá Smára Hólm
Þjónusta og vinnuferli við ryðvörn
Móttaka bifreiðar
Bifreið skal afhent daginn áður en ryðvörn fer fram.
Opnunartímar:
Sunnudagar: Eftir samkomulagi
Mánudaga–fimmtudaga: 08:00–17:00
Föstudaga: 08:00–16:00
Undirbúningur
Bifreið er hituð upp í 25°C til að tryggja þurrk áður en úðun hefst.
Vinsamlegast látið vita ef bifreiðin er með viðkvæma eða verðmæta hluti, t.d. bremsubúnað eða felgur, sem ekki mega komast í snertingu við Prolan.
Dekk og aðgengi
Öll dekk, þar með talið varadekk, eru fjarlægð.
Sérverkfæri til að fjarlægja dekk skulu skilin eftir í farþegasæti.
Sé varadekkið ryðgað fast leysum við það upp með Prolan fjarlægjum við endurkomu. Vinsamlegast látið okkur vita við pöntun.
Hreinsun
Plasthlífar og pönnur eru fjarlægðar til að ná að öllum viðkvæmum flötum, m.a. hjólaskálum.
Bifreiðin er hreinsuð með háþrýstilofti.
Þykkar ryðflögur eru fjarlægðar með loftnálahamri.
Prolan er notað til að leysa upp ryð eftir þörfum.
Verkstæðið er hreinsað áður en úðun hefst.
Úðun Prolan
Prolan er úðað á lykilsvæði: undirvagn, grindarbita, skrúfur og plasthluta.
Bifreiðin stendur í 1–2 klukkustundir til að tryggja viðloðun áður en önnur umferð er úðuð. Meðferð á pústkerfi er valkvæð og krefst skriflegrar samþykkis.
Frágangur og afhending
Nýjar skrúfur settar í eldri bifreiðar ef þörf krefur.
Smurmiðar settir á.
Afhending: Daginn eftir, Kringum klukkan 17:00
(Það er hringt rétt áður bifreið er tilbúin).
Endurkomur og viðhald
Við fyrstu endurkomu er Prolan úðað í hurðir, húdd og aðra viðkvæma hluta.
Mælt er með skoðun eftir 1–3 ár, eftir ástandi bifreiðar.
Sé endurkoma ekki framkvæmd innan þriggja ára fellur endurryðvarnarverð niður.
Lengri útgáfa:
Prolan ryðvörn hjá Smára Holm – Upplýsingar og leiðbeiningar
Sæll/Sæl og takk fyrir áhugann á ryðvörn með Prolan.
Hér að neðan má finna upplýsingar um ferlið og verðið.
Afhending bifreiðar
Bifreið þarf að koma í síðasta lagi daginn áður en vinna hefst, fyrir kl. 17:00.
Við tökum öll dekk undan (þ.m.t. varadekk ef það er til staðar undir bifreiðinni),
ásamt öllum pönnum, hlífum og plasti undan bifreið og úr innri brettum.
Vinnuferlið
- Undirvagninn er blásinn með „10 bör“ háþrýstilofti og yfir nótt þurrkaður í 20-25°.
- Við úðum Prolan undir allan undirvagninn, inn í sílsa, grind (ef við á), bitar,
holrými og aðra staði þar sem ryð getur myndast.
- Mikilvægt er að bifreiðin sé alveg þurr áður en úðun fer fram, þess vegna
fáum við hana degi áður til að ná réttum málmhita.
- Smurmiði er settur á framrúðu og verkbókhald fylgir bifreiðinni
– þetta tryggir rekjanleika og gæði.
Eftirfylgni og endurkomur
- Fyrsta endurkoma: Bifreið kemur í skoðun og við bætum við efni í hurðir,
húdd, skott og skoðum undirvagninn
– þetta er innifalið einu sinni eftir fyrsta tíman.
Mikilvægt er að koma með bifreiðina í fyrstu endurkomu
svo efnið haldi áfram að virka rétt.
o Á sumrin getur ProLan orðið virkt vegna hitaþenslu málms – dregst
efnið þá dýpra inn í járnið.
o Eftir fyrstu endurkomu: Þegar ryð hefur stöðvast, nægja skoðanir á 4 ára
fresti og þarf þá að greiða skoðunargjald.
Undantekningar og mat á ástandi
- Ef ástand bifreiðar er það slæmt að ryðvörn er ekki skynsamleg fjárfesting
miðað við verðmæti hennar, þá framkvæmum við ekki vinnuna
– og er það kostnaðarlaust mat.
Ef bifreið þarfnast viðgerða áður en ryðvörn er sett á,
er hægt að bóka tíma aftur eftir viðgerð.
Verð og aðrar upplýsingar
Grunnverð fyrir ryðvörn: 220.000 kr. m/vsk frá febrúar 2026
(aukakostnaður bætist við ef um ræðir eldri,
eða illa farna bíla þar sem ryðmundun er orðin talsverð.
Fyrir bíla eldri en 8 ára getur þurft meira efni og vinnu
– þetta fer eftir ástandi bifreiðar.
Ekki hika við að hafa samband til að fá frekari upplýsingar eða panta tíma:
S: 861 7237
Prolan ehf.
Bílaryðvarnarþjónusta - Hjá Smára Hólm
Prolan ryðvörn – Helstu upplýsingar
✅ Bifreið þarf að koma daginn áður en vinna fer fram, fyrir kl. 17:00
✅ Við fjarlægjum dekk, varadekk, plast og hlífar undir bifreið
✅ Ryðvörn er sett undir allan undirvagninn, sílsa, holrými og fleiri viðkvæma staði
✅ Bifreið er blásin þurr og hituð til að tryggja hámarks virkni efnisins
✅ Fyrsta endurkoma eftir 1 ár – innifalið í verði
✅ Síðari skoðanir á 4 ára fresti, ef bifreið er hætt að ryðga
✅ Ef ástand bifreiðar er of slæmt, þá er það metið og engin kostnaður ef ekki er ryðvarið
✅ Verð: 213.800 kr. m/vsk (aukakostnaður ef bifreið er eldri en 8 ára og þarf auka vinnu/efni)

