top of page

Afhending og sendingar

​

Við keyrum vörur út á þriðjudögum og fimmtudögum um útkeyrsluleiðina á kortinu, frá Hafnarfirði um Garðabæ, Kópavog og Reykjavík upp í Mosfellsbæ við Leirvogstungu. Óskir um útkeyrslu þurfa að berast fyrir lokun á mánudegi fyrir þriðjudag og fyrir lokun á miðvikudegi fyrir fimmtudag. Útkeyrsla á leiðinni þessa daga er viðskiptavinum að kostnaðarlausu.

​

Útkeyrsluleiðin er sú leið sem við keyrum hvort sem er á hverjum degi, því við tökum pantanir með okkur heim og keyrum þær í leiðinni í vinnuna. Þess vegna getum við boðið útkeyrslu á leiðinni án aukakostnaðar.

​

Sé afhendingarstaður utan leiðarinnar reiknast kílómetragjald og tímagjald frá þeim stað þar sem farið er af leiðinni og að afhendingarstað og til baka, en ekki frá Suðurhellu 5. Dæmi: ef aka þarf 5,8 km út af leiðinni, um 9 mínútur hvora leið, reiknast sá akstur fram og til baka. Kílómetragjaldið er 6,95 kr. á km og tímagjaldið 14.700 kr. á klukkustund með VSK.

​

Óski viðskiptavinur eftir útkeyrslu á öðrum dögum þarf hann að óska eftir því strax, og þá reiknast kílómetra- og tímagjald frá Suðurhellu 5, 221 Hafnarfirði, fram og til baka.

​

Fyrirtæki sem kaupa fyrir 150.000 kr. eða meira á mánuði greiða ekki aukalega fyrir útkeyrslu.

​

Sendingar með Samskip eru á kostnað kaupanda.

​

Viðskiptavinur getur einnig sótt pöntun sjálfur eða óskað eftir að annar aðili sæki hana fyrir sig og sér þá sjálfur um það fyrirkomulag.

​

Við erum ekki flutningafyrirtæki og keyrum ekki út mikinn fjölda sendinga á degi hverjum. Þetta fyrirkomulag er sú leið sem við getum boðið til að halda kostnaði niðri fyrir viðskiptavini okkar.

bottom of page