Rör fyrir 1 lítra brúsa
Aukarör – eitt rör fylgir alltaf byssunni; kauptu aukarör fyrir hverja tegund brúsa og smelltu byssunni á rörið eftir því hvaða vöru þú ert að nota.
Rör sem fer niður í 1 lítra brúsana okkar, með rauðu loki og hraðtengi. Byssan smellur á tengið.
Eitt rör fyrir hvern 1 lítra brúsa: ProLan Medium 170, ProLan Heavy 270, ProLan Heavy Enduro 300 og ProLan Extreme 350. Veldu fyrir hvaða brúsa rörið er.
Tilvísun: JWL Base tube – Gun 146-807-000.
Afhending og sendingar
Við keyrum vörur út á þriðjudögum og fimmtudögum um útkeyrsluleið frá Hafnarfirði upp í Mosfellsbæ. Óskir um útkeyrslu þurfa að berast fyrir lokun á mánudegi (fyrir þriðjudag) og miðvikudegi (fyrir fimmtudag). Útkeyrsla á leiðinni þessa daga er viðskiptavinum að kostnaðarlausu. Utan leiðarinnar og á öðrum dögum reiknast kílómetragjald og tímagjald. Fyrirtæki sem kaupa fyrir 150.000 kr. eða meira á mánuði greiða ekki aukalega fyrir útkeyrslu. Sendingar með Samskip eru á kostnað kaupanda. Einnig er hægt að sækja pöntun. Nánari upplýsingar á síðunni Afhending og sendingar.

