ProLan Medium 170 – kassi, 12 × 500 ml úðabrúsar
Kassinn inniheldur 12 × 500 ml úðabrúsa.
ProLan Medium 170 er þunn og mjög smjúgandi lanólínvörn fyrir tæringarvörn, smurningu og viðhald. Hún smýgur vel inn í yfirborðsryð, samskeyti, holrými og þröng svæði, hrindir frá sér raka og skilur eftir þunna, sveigjanlega og vaxkennda vörn. Medium hentar sérstaklega þar sem tæring er þegar farin að myndast og þar sem mikilvægt er að efnið nái inn að málmyfirborðinu. Varan má einnig nota sem þunna yfirborðsvörn og bón á viðeigandi flötum.
Helstu notkunarsvið:
Bifreiðar | Holrými | Ryðgaðir málmfletir | Vélar og tæki | Smurning og viðhald | Rafbúnaður | Sjávariðnaður | Landbúnaður | Iðnaður | Felgur og lakkaðir fletir
ProLan Medium 170 er þynnsta og mest smjúgandi varan í ProLan-línunni. Hún smýgur vel inn í yfirborðsryð, samskeyti, ójöfnur og þröng svæði þar sem raki og tæring geta náð fótfestu. Medium hrindir frá sér raka og skilur eftir þunna, sveigjanlega og vaxkennda lanólínvörn á yfirborðinu. Vegna mikillar smygni hentar Medium sérstaklega vel þar sem tæring er þegar farin að myndast og þegar mikilvægt er að vörnin nái inn í ryðið og að málmyfirborðinu. Hún hentar einnig vel fyrir holrými, festingar, samskeyti og önnur svæði sem erfitt er að ná til. Medium er jafnframt fjölhæf vara fyrir smurningu, viðhald og vernd véla, tækja og málmhluta og má nota til að losa og verja ýmsa hreyfanlega eða ryðgaða hluti.
Einnig notað sem bón og yfirborðsvörn ProLan Medium 170 má bera mjög þunnt á viðeigandi lakkaða fleti og pússa yfir. Lanólínið skilur þá eftir þunna, vaxkennda og rakafráhrindandi yfirborðsvörn. Medium hefur því einnig verið notað sem bíla- og felgubón, auk annarrar yfirborðsverndar.
ProLan Medium 170 og gamla Mjallarbónið Margir Íslendingar muna eftir gamla Mjallarbóninu sem sérstaklega endingargóðu bílabóni. Gamla Mjallarbónið byggði á lanólíni og var þekkt fyrir að mynda sterka, vatnsfráhrindandi yfirborðsvörn, þó eldri útgáfur þess hafi verið þykkar og tímafrekari í ásetningu en nútímaleg bílabón.
ProLan Medium 170 er ekki kynnt sem gamla Mjallarbónið og við fullyrðum ekki að uppskriftirnar séu þær sömu. Hins vegar eru greinileg líkindi í grunneiginleikum og notkun: báðar vörurnar byggja á eiginleikum lanólíns, loða við yfirborð, hrinda frá sér raka og geta skilið eftir vaxkennda yfirborðsvörn.
ProLan Medium er jafnframt mjög smjúgandi vara og hefur mun fjölbreyttari notkun en hefðbundið bílabón, meðal annars við tæringarvörn, holrými, smurningu, vélar, tæki og viðhald.
Helstu eiginleikar
Frábær gegndræpi
Losar föst og ryðgað hluti
Smyr og verndar gegn tæringu
Myndar gegnsæja, vaxkennda verndarfilmur
Ýtir raka til hliðar og lokar fyrir súrefni
Vatnsþolinn og þolir háþrýstisprautun allt að 170 bar eftir þurrkun
Þolir salt, sýrur, áburð og önnur tærandi efni
Öruggur á málningu, gleri og flestum meðhöndluðum yfirborðum
Rafeinangrandi allt að 70 kV
Útfjólublánaþolinn í allt að 24 mánuði
Samþykktur af NSF H1 og NATO
Ráðlögð notkun
Boltar, hengsl, læsingar og hreyfanlegir liðir
Rafmagnstenglar og snertipinnar
Keðjur, mótorhjól og reiðhjól
Gartæki
Bílar og atvinnubílar
Iðnaðarvélar
Þyrlur og vökvabúnaður
Skógarvinnubúnaður
Sjávarbúnaður og útborðavélar
Almenn viðhald og tæringarvörn
Öryggisblöð (SDS)
Afhending og sendingar
Við keyrum vörur út á þriðjudögum og fimmtudögum um útkeyrsluleið frá Hafnarfirði upp í Mosfellsbæ. Óskir um útkeyrslu þurfa að berast fyrir lokun á mánudegi (fyrir þriðjudag) og miðvikudegi (fyrir fimmtudag). Útkeyrsla á leiðinni þessa daga er viðskiptavinum að kostnaðarlausu. Utan leiðarinnar og á öðrum dögum reiknast kílómetragjald og tímagjald. Fyrirtæki sem kaupa fyrir 150.000 kr. eða meira á mánuði greiða ekki aukalega fyrir útkeyrslu. Sendingar með Samskip eru á kostnað kaupanda. Einnig er hægt að sækja pöntun. Nánari upplýsingar á síðunni Afhending og sendingar.

