top of page

ProLan Grease 450

5.400 kr.Price
Stærð
100 ml
400 g
0.5 kg
4 kg
Quantity

ProLan Grease 450 Anti-Seize er þykk og langvarandi lanólínfeiti fyrir smurningu, samsetningu og tæringarvörn. Hún loðir sterkt við málm, er óleysanleg í vatni og myndar rakahindrun sem helst vel í samskeytum og á viðkvæmum flötum. Grease 450 hentar sérstaklega fyrir bolta, rær, skrúfgengi, ryðfríar tengingar, rafbúnað, dælur, loka, pinna, fóðringar og ýmsar samsetningar. Hún hefur raf- og rafgreiningareinangrandi eiginleika allt að 70 kV, er NSF H1-skráð og hefur Eurofins-samþykki fyrir viðeigandi notkun í drykkjarvatnskerfum. Við notum Grease 450 einnig til að verja ákveðin lítil op og bil gegn vatns- og rakainngangi með því að mynda mjúka og langvarandi lanólínhindrun.

Helstu notkunarsvið Iðnaður | Sjávariðnaður | Offshore | Vatn og veitur | Matvælaiðnaður | Landbúnaður | Vinnuvélar | Flutningar | Byggingar og innviðir | Rafbúnaður | Boltar og skrúfgengi | Dælur og lokar | Pinnar og fóðringar | Vélar og viðhald

ProLan Grease 450 Anti-Seize er þykk lanólínbundin smur-, samsetningar- og tæringarvörn fyrir verkefni þar sem þörf er á sterkri viðloðun, langvarandi smurningu og vörn gegn raka, salti og tæringu.

Grease 450 byggir á lanólíni og jurtaolíu. Hún helst vel þar sem hún er borin á, gufar ekki auðveldlega upp og er óleysanleg í vatni. Þess vegna hentar hún sérstaklega vel í samskeyti, á bolta, skrúfgengi, tengingar og önnur svæði þar sem þynnri smurefni geta runnið eða skolast burt.

Anti-Seize – boltar, rær og skrúfgengi

Eitt helsta notkunarsvið Grease 450 er sem anti-seize samsetningarfeiti. Hún er borin á bolta, rær, skrúfgengi og aðrar málmtengingar áður en hlutir eru settir saman. Lanólínlagið hjálpar til við að aðskilja málmfletina, verja þá gegn raka og tæringu og auðvelda að losa samsetninguna aftur síðar.

Grease 450 hentar sérstaklega vel fyrir ryðfrítt stál þar sem hún hjálpar til við að draga úr hættu á galling / núningsfestingu, þegar ryðfrí skrúfgengi grípa eða festast saman við samsetningu.

Hentar meðal annars fyrir:

  • bolta og rær

  • skrúfgengi

  • ryðfríar tengingar

  • flansa

  • stálvirki

  • dælur og loka

  • krana

  • vinnuvélar

  • skip og sjávarbúnað

  • landbúnaðartæki

  • saltdreifara

  • snjóruðningstæki

  • vélar og iðnaðarbúnað

Rakahindrun – lítil op og bil

Við ProLan Ryðvarnarþjónustu notum við Grease 450 einnig á ákveðnum stöðum þar sem lítil op eða bil geta hleypt vatni og raka inn í holrými eða að málmyfirborði.

Vegna þess að Grease 450 er þykk, loðir mjög vel og er óleysanleg í vatni getum við notað hana til að fylla eða verja ákveðin lítil op þannig að myndist mjúk, vatnsfráhrindandi lanólínhindrun.

Þannig hjálpar hún til við að draga úr vatns- og rakainngangi um leið og hún ver málminn í kring gegn tæringu.

Grease 450 er þó ekki kynnt sem staðgengill fyrir OEM-gúmmítappa, burðarþéttiefni eða vottað vatnsþéttikerfi þar sem slíkt er áskilið.

Rafmagn og rafbúnaður

Grease 450 hefur rafmagns- og rafgreiningareinangrandi eiginleika allt að 70 kV samkvæmt tæknigögnum.

Hún hentar því meðal annars til að verja:

  • rafmagnstengi

  • tengiplugga

  • rafgeymaskauta

  • tengingar í vélum og vinnuvélum

  • rafbúnað í röku og söltu umhverfi

  • tengingar milli ólíkra málma

Grease 450 myndar einnig hindrun milli ólíkra málma og getur þannig hjálpað til við að draga úr galvanískri tæringu þar sem mismunandi málmar eru settir saman í röku eða söltu umhverfi.

70 kV vísar til einangrandi eiginleika vörunnar og er ekki heimild til vinnu á spennuhafa búnaði.

Vatn og sjávarumhverfi

Grease 450 er óleysanleg í vatni og hönnuð til að haldast í samskeytum og á málmflötum við mjög krefjandi aðstæður.

Hún hentar meðal annars fyrir:

  • skip og báta

  • sjávarbúnað

  • fiskeldi

  • offshore-búnað

  • dælur

  • loka

  • krana

  • bolta og festingar

  • búnað sem verður reglulega fyrir saltvatni

Vatn og veitur

Grease 450 hefur Eurofins drykkjarvatnssamþykki fyrir viðeigandi notkun.

Því getur varan hentað við ákveðna samsetningu og viðhald á búnaði sem tengist neysluvatni, svo sem:

  • dælur

  • loka

  • fittings

  • tengingar

  • skrúfgengi

  • samsetningar í vatns- og veitukerfum

Matvælaiðnaður

ProLan Grease 450 er NSF H1-skráð fyrir viðeigandi notkun þar sem möguleiki getur verið á tilfallandi snertingu smurefnis við matvæli.

Þetta gerir hana áhugaverða fyrir meðal annars:

  • matvælavinnslu

  • fiskvinnslu

  • mjólkuriðnað

  • framleiðslulínur

  • ryðfrían búnað

  • skrúfgengi og samsetningar

  • dælur og loka

O-hringir, þéttingar og samsetningar

Grease 450 hentar einnig sem samsetningarfeiti fyrir ýmsa vélahluta, O-hringi og ákveðnar þéttingar og tengingar.

Athuga þarf þó alltaf samhæfni við efni viðkomandi hlutar.

Samkvæmt tæknigögnum skal meðal annars gæta sérstaklega að notkun með EPDM.

Pinnar, fóðringar og hægfara búnaður

Grease 450 hefur góða smureiginleika og hentar meðal annars fyrir:

  • pinna

  • fóðringar

  • hægfara legur

  • nylon-hluta

  • opin tannhjól

  • keðjur

  • hreyfanlega hluti sem verða fyrir raka og álagi

Hún er hins vegar ekki hefðbundin háhraða hjólalegufeiti og á því ekki að markaðssetja hana sem hjólalegufeiti fyrir bíla eða eftirvagna.

Borun og málmvinnsla

Grease 450 má einnig nota sem smurefni við ákveðna:

  • borun

  • skrúfgangsskurð

  • málmvinnslu

  • samsetningu vélarhluta

Tæringarvörn

Grease 450 myndar mjög þétta lanólínhindrun við málmyfirborðið.

Hún hjálpar til við að halda raka og súrefni frá yfirborðinu og skapar þannig óhagstæðari aðstæður fyrir áframhaldandi tæringu.

Hún hentar því sérstaklega vel þar sem þörf er á þykkri og langvarandi vörn sem helst á sínum stað.

C4 tæringarumhverfi

Grease 450 hefur samkvæmt evrópskum tæknigögnum verið prófuð fyrir C4 tæringarumhverfi, sem nær til krefjandi iðnaðar- og strandsvæða þar sem tæringarálag er mikið.

Hitastig

Núverandi evrópsk tæknigögn gefa upp hámarks notkunarhitastig allt að 170°C.

Það þýðir þó ekki að Grease 450 sé sérhæfð high-temperature feiti fyrir öll verkefni við mjög hátt hitastig.

Fyrir slíka notkun þarf alltaf að skoða tæknikröfur verkefnisins.

Efna- og umhverfisþol

Grease 450 er samkvæmt tæknigögnum ætluð til notkunar við krefjandi aðstæður þar sem meðal annars geta komið við sögu:

  • vatn

  • raki

  • salt

  • saltvatn

  • áburður

  • ákveðnar sýrur og önnur tærandi áhrif

Fyrir nákvæma efnaþolstöflu skal alltaf vísa í tækniblað vörunnar.

Samsetning

Samkvæmt evrópsku öryggisblaði byggir ProLan Grease á:

Lanólíni og jurtaolíu.

Evrópsk vörugögn fyrir Grease 450 tilgreina jafnframt að varan innihaldi ekki:

  • PTFE / Teflon

  • klóríð

  • sílikon

  • nikkel

  • þungmálma

Helstu vottanir, prófanir og eiginleikar

  • NSF H1

  • Eurofins drykkjarvatnssamþykki

  • C4 tæringarprófun

  • rafmagnseinangrandi eiginleikar allt að 70

  • rafgreiningarhindrun milli ólíkra málma

  • óleysanleg í vatni

  • hámarks notkunarhitastig allt að 170°C

  • evrópsk SDS/TDS gögn og REACH/CLP-samræmi eftir því sem við á

Helstu eiginleikar

  • Fyrirbyggir festingu, núningssár og skemmdir á þráðum á ryðfríum stálboltum og festingum

  • Tryggir auðvelda sundurgrafningu, jafnvel eftir langvarandi útsetningu fyrir tærandi umhverfi

  • Stöðvar núverandi tæringu og hjálpar til við að koma í veg fyrir myndun ryðs í framtíðinni

  • Vatns- og rakaþolið og algjörlega óleysanlegt í vatni

  • Þolir salt, sýrur, áburð og önnur tærandi efni

  • Rafeinangrandi upp í 70 kV

  • Samþykkt af NSF H1 fyrir óbeina snertingu við matvæli

  • Samþykkt til notkunar í drykkjarvatnskerfum

  • Samþykkt af NATO

  • Laust við klóríð, sílikon, nikkel og þungmálma

  • 100% náttúruleg formúla byggð á lánólíni

  • Öruggt á málningu, gleri og flestum meðhöndluðum yfirborðum

  • Útfjólubláttónarþolið í allt að 24 mánuði

Ráðlögð notkun

  • Ryðfríu stáli boltar, þráðtengingar og samsetningarvinna

  • Sjávarútgerðar-, aflandsvinda- og námubúnaður

  • Kranar, vökvakerfi og byggingavélar

  • Flutningstæki og þungur iðnaðarbúnaður

  • Dælar, lokar og drykkjarvatnskerfi

  • Búnaður fyrir fiskeldi og sjávarútveg

  • Saltdreifarar, snjósleðar og landbúnaðarvélar

  • Skip, jachta og traktorar

  • Rafmagnstengingar í spillandi umhverfi

Öryggisblöð (SDS)

Afhending og sendingar

Við keyrum vörur út á þriðjudögum og fimmtudögum um útkeyrsluleið frá Hafnarfirði upp í Mosfellsbæ. Óskir um útkeyrslu þurfa að berast fyrir lokun á mánudegi (fyrir þriðjudag) og miðvikudegi (fyrir fimmtudag). Útkeyrsla á leiðinni þessa daga er viðskiptavinum að kostnaðarlausu. Utan leiðarinnar og á öðrum dögum reiknast kílómetragjald og tímagjald. Fyrirtæki sem kaupa fyrir 150.000 kr. eða meira á mánuði greiða ekki aukalega fyrir útkeyrslu. Sendingar með Samskip eru á kostnað kaupanda. Einnig er hægt að sækja pöntun. Nánari upplýsingar á síðunni Afhending og sendingar.

    bottom of page