smurninG og Ryðvarnir

  • Heim

  • Sölustaðir/Pantanir

  • Um Prolan!

  • Vörur

  • Fréttir

  • More

    Prolan fæst nú víða á Norðurlandi

    May 3, 2016

    Hjólreiðaverslunin Örninn hefur sölu á Prolan

    April 12, 2016

    Ryðvarnir fyrir Bifreiðar (FÍB)

    December 29, 2015

    Umfjöllun FÍB um Prolan

    December 29, 2015

    Please reload

    Recent Posts

    Umfjöllun FÍB um Prolan

    December 29, 2015

    Ryðvarnir fyrir Bifreiðar (FÍB)

    December 29, 2015

    1/2
    Please reload

    Featured Posts

    Umfjöllun FÍB um Prolan

    29.12.2015

    |

    Tekið af vef www.fib.is

     

    Bílaryðvörn úr sauðaull

     

     

    04.11.2015

     

     

    Eins og margir þekkja sem umgengist hafa sauðfé, er ullin mjög fiturík. Meðan hún er enn á rollunum er í henni mikið af olíu sem kallast lanolin og ver sauðféð gegn því að blotna inn að skinni í votviðrum og snjóbyljum. Mikið af lanolin fellur til í ullarvinnslu og úr því hafa lengi verið framleidd ýmiskonar snyrtikrem og græðandi smyrsl. En nú síðast hafa snjallir frumkvöðlar þróað ryðvarnarefni fyrir bíla úr lanolinolíu og kalla það Prolan.

     

    Ekki er vitað til að á Íslandi séu bílar ryðvarðir með Prolan en í Danmörku og Svíþjóð hafa allmargar bílaryðvarnarstöðvar hætt að nota þau olíu- og vaxefni sem til þessa hafa þótt duga best gegn ryðtæringunni og nota nú eingöngu Prolan efni sem unnin eru úr ullarfitunni. Jimmy nokkur Sögaard sem rekur ryðvarnarstöð á Jótlandi segir að auk þess að ryðverja mjög vel fari Prolan mun betur með hann og starfsmenn hans en gömlu olíu- og vaxefnin. Höfuðverkurinn sem fylgdi notkun gömlu efnanna sé alveg horfinn.

     

    Hann segir að viðskiptavinir hans taki því fagnandi að fá bíla sína ryðvarða með þessu lífræna efni enda þótt það sé nokkru dýrara en gömlu efnin eins og Tectyl og Dinitrol o.fl. Þá hafi reynslan hingað til sýnt að það ver bílana ekkert síður en gömlu olíu- og vaxefnin. Prolan stöðvi frekari ryðmyndun þar sem hún er byrjuð. Það loði mjög vel við járnið og þegar það þorni myndi það húð sem er það sterk að ekki er nauðsynlegt að endurnýja bílaryðvörnina nema á fjögurra ára fresti til að halda bílnum ryðlausum.

     

    Prolan efnin fást í ýmsum útgáfum og þykktum eftir því hvar og hvernig á að nota þau.Þannig er til Prolan koppa- og smurfeiti auk ryðvarnarolíunnar sem sprautað er inn í holrúm í burðarvirki bíla, á undirvagna o.s.frv. Efnin eru sögð algerlega lífræn. Í þeim eru hvorki klór- né sílikonsambönd sem geta verið skaðleg fyrir gúmmífóðringar og einangrun á rafleiðslum. Það er því sagt mjög heppilegt til að vatnsverja rafleiðslur og kveikiþræði í bílum.

     

    *Greinin hér að ofan var birt á vef félags íslenskra bifreiðaeiganda www.fib.is. Hér er beinn hlekkur á greinina

    ( http://www.fib.is/is/um-fib/frettir/bilarydvorn-ur-saudaull ). Tekið skal fram að greinin og innihald hennar er ekki unnið af umboðsaðilum Prolan á Íslandi*

    Greinar

    smurefni

    ryðvörn

    Please reload

    Follow Us

    ryðvörn

    smurefni

    Please reload

    Search By Tags

    May 2016 (1)

    April 2016 (1)

    December 2015 (2)

    Please reload

    Archive
    • Facebook Basic Square
    • Twitter Basic Square
    • Google+ Basic Square

    ©                                                         2017 Hjá Smára Hólm ehf.          Rauðhella 1, 221 Hafnarfjörður: Sími 8617237  : smari.holm@gmail.com

    • w-facebook
    • Twitter Clean